Litla mötuneytið á hálsinum

Ekkert til sparað í þessum kofa. Það veit ég frá fyrstu hendi. Og allt ruglið sem átti sér stað á byggingartímanum sló ný met.
mbl.is Starfsmenn mötuneytis OR leiðrétta rangtúlkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúkk, ég hélt að framsóknarflokkurinn væri að taka við.

En þetta var mun skárri frétt en ég hélt.

Fínt að stefna að því að verða græn borg. Bara fela alla stóru jeppana. 


mbl.is Bjartsýnn á að Reykjavík verði græn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ Steingrímur.

Viltu ekki fara að taka þér langt og gott frí.

Mikið svakalega væri það næs. 

Við skattborgarnir erum alveg tilbúin að greiða þér sama og Davíð í eftirlaun. 

Við skulum meira að segja skjóta saman í nýjan Þjóðvilja svo þú getir orðið ritstjóri. 


mbl.is Hægt og bítandi að endurheimta stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt

En ekki neitt sérstaklega trúverðugt frá formanni Sjallanna.

Vandamálið er að það þarf að hreinsa til í stjórnmálaelítunni og stjórnkerfinu. 


mbl.is Bjarni: Hugmyndasnauð afturhaldsríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er viðhaldi ábótavant hjá Norðuráli

Maður veltir því óhjákvæmilega fyrir sér hvort að viðhald sé í lágmarki hjá þessum stórnotenda.
mbl.is Víðtækar rafmagnstruflanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki ríkisstjórnin samábyrg.

Maður veltir fyrir óneitanlega fyrir sér hvort það eigi að halda hlífiskildi yfir einhverjum útvöldum. Er það ekki að koma betur og betur í ljós að ábyrgð ráðherra engin.

Var ekki Össur innsti koppur í búri þegar Ingibjörg lagðist í veikindin, ber hann enga ábyrgð. Sat ekki Jóhanna í þessari ríkistjórn. 

Hvað með Guðlaug Þór og aðra sjalla. Eiga þeir að fá að halda áfram endalaust. 

Þetta endar auðvitað með útþynntri niðurstöðu á þann veg að allir hafi verið að reyna sitt besta og engin beri neina raunverulega ábyrgð. 

Er nema von að þjóðin beri ekki neitt traust til stjórnmálamanna. 

PS er að hlusta á þessa snillinga úthluta sér og sínum flokkum ríflegum styrkjum frá skattgreiðendum

Ætla að skreppa fram og æla. 


mbl.is Líkur á landsdómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll

Mikið er nú gott að þetta liggur fyrir. En væri nú ekki nær að snúa sér að stjórn landsins og slaka á í ástarjátningunum
mbl.is Þykir vænt um Jón Bjarnason
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var við einhverju öðru að búast.

Er ekki ljóst að við erum á hraðferð niður alla alþjóðlega lista. Nema listann um ógagnsæi og spillingu þar erum við á hraðferð upp.
mbl.is Dregur úr samkeppnishæfni Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æðislegt.

Nú geta þessir 2000 íbúar brunað fram og tilbaka í kaffiboð hver hjá öðrum í boði skattgreiðenda. Til hamingju með það.
mbl.is Vinna við Héðinsfjarðargöng á lokaspretti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá ég hélt að það væri verið að tala um ráðherra í fyrirsögninni

En síðan var þetta bara um einhverja bjána sem stálu kyrkislöngu
mbl.is „Heimskur heimskari á ferð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband