15.6.2010 | 01:19
Hefur einhver áhuga
Mér gæti bara ekki verið meira sama þótt að þessir bírokratar makki eitthvað saman í Brussel. Það er ekki séns að íslenska þjóðin samþykki samningin. Ekki einu sinni þótt að Breskir íhaldsmenn og hollenskir þjóðernissinnar samþykktu að snæða icesave samningsbullið saman og kyngja því vænum slurk að íslensku brennivíni.
Ég hef hingað til verið fylgjandi því að ganga í EU en sennilega er ég smitaður af JónValísku sem er auðvitað talsvert alvarlegur sjúkdómur. En ég lofa að leita mér lækninga og sennilega verð ég orðin gjótharður EU sinni þegar næsta sveifla gengur yfir þessa ráðvilltu þjóð.
![]() |
Umsóknin tekin fyrir 17. júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2010 | 00:57
Verkefnið að takast ?
Ha bíddu, hvað er að takast. Að fara í stórkostlegustu eignaupptöku sem um getur í íslandssögunni. Þurrka út millistéttina, skattpína allt til helv. og afhenda auðlindirnar erlendum kaupahéðnum.
Geðveikt hjá þér Steinki.
![]() |
Verkefnið er að takast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2010 | 00:50
Burt með þessa ógeðsstofnun
![]() |
Sendinefnd AGS á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2010 | 11:18
Glórulaust rugl
110% leið er einhver ómerkilegasta brella sem bönkunum hefur dottið í hug. Að veðsetja eignir um 110% er ávísun á skuldafjötra það sem eftir er ævinar. Í núverandi kerfi er innbyggt að um leið og fasteignaverð hækkar þá hækkar neysluvísitala sem leiðir af sér að veðsetningarhlutfall eykst en frekar. Fólk í þessari stöðu á ekkert í fasteigninni en er í raun búið að skuldbinda sig til að leigja hana af viðkomandi fjármálastofnun langt yfir markaðsverði á 40 ára leigusamningi.
Þetta er auðvitað glórulaust rugl.
![]() |
Hafa komið til móts við skuldavandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)