25.6.2010 | 23:28
Jæja hafa þeir áhyggjur.
En þeir hafa örugglega ekki áhyggjur af afkomu þúsunda fjölskyldna sem berjast í bökkum við að ná endum saman. Nei þeim er ábyggilega nákvæmlega sama en AGS hefur verulegar áhyggjur af því að umbjóðendur þeirra þ.e. kröfuhafarnir ná ekki að blóðmjólka þjóðina.
AGS hefur áhyggjur af bönkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vá hvað ég er sammála þér.
Gylfa finnst í lagi að lán sem hafa stökkbreyst 2-3 fallt sé í lagi. Það er heila málið. Fólk á að borga það og engar refjar.
Jón Á Grétarsson, 25.6.2010 kl. 23:35
Þetta kallast að hitta naglan á höfuðið.
En ég óttast að þetta sé bara byrjunin. Það er leynt og ljóst stefna erlendu fjármálamannana sem eiga orðið Íslenska bankakerfið að eignast allt hér.
Við erum nú þegar farinn að sjá dæmi um auðlindirnar. Vatnið og orkan ogsfr.
Ég hef sagt það frá upphafi. Það átti að láta bankana fara á hausinn og byrja upp á nýtt. Að reyna að borga eitthvað sem er hægt að borga eru gríðarleg mistök.
AGS er hér til að fullnýta þau mistök.
Gleymið aldrei orðum sendiherra AGS. Hann heirðist segja að Íslendingar ákváðu að hleypa þeim inn og sjá um fjármálakerfið. "I GOT THEM !"
ÉG hef sömuleiðis aldrei skilið af hverju það eru ennþá til Íslendingar sem telja að þessi peningastofnun hafi virkilega áhuga á að hjálpa löndum.
Veit einhver um eitt land sem þeir náðu að bjarga úr skuldasúpu ? Svarið verður alltaf nei og löndin mistu líka allt sitt í hendur auðhringja.
Af hverju getur fólk ekki séð hið augljósa. Grikkland er nýjasta dæmið og er ekki beint að gera það gott með þessa snillinga við stjórnvöllinn.
Allt er til sölu þar. Grísku eyjarnar, vatnið, orkann ogsfr
Ég byð til guðs að við losnum frá þessum skrímslum einn daginn. Bæði innlendum vina og auðhringjum og ekki síður AGS.
Már (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 01:39
ja of það ekki seinna en strax !!!!!!!!!!!!!!!
sunna (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 02:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.