26.6.2010 | 21:38
Ef hún er svona áhugasöm afhverju er hún ekki í ESB flokknum
Er nema von að maður velti því fyrir sér.
Óþarfi að sundra flokksmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Sigurður
Hafður engar áhyggjur nú mun ESB flokkunum fjölga!
Það er alveg ljóst að ég og fleiri verðum mjög fegin að losna frá þessum þjóðernissinnum eins og þér!
Og síðan er mér og öðrum hreinlega létt að losna frá þessum spillingaröflum og sérhagsmunagæsluliði!!!
En við ESB-aðildarviðræðusinnar ætlum okkur hins vegar stóri hluti, því við erum ekki aðeins að tala um 1/4 af þeim 24% sem nú kjósa Sjálfstæðisflokkinn en munu nú yfirgefa hann, heldur stóran hlutan þeirra 12%, sem yfirgáfu flokkinn í síðustu kosningum. Þessu til viðbótar koma síðan óánægðir Framsóknarmenn 6-8% og hægri kratar 5-10%.
Slíkur heiðarlegur og óspilltur miðju/hægri flokkur gæti náð allt að 25-30% fylgi og 16-18 mönnum á þing!
Með góðri kveðju,
Guðbjörn Guðbjörnsson
Guðbjörn Guðbjörnsson, 26.6.2010 kl. 23:23
Halló halló, ekki kalla mið þjóðernissinna. Mér verður íllt við tilhugsunina um þjónernissinna. ég er þessi meðaljón sem tekur sveiflun fram og tilbaka í þessu máli en ég vil halda áfram með umsóknina. Síðan verður að koma í ljós hvað samningurinn ber í skauti sér hvort að hann er ásættanlegur eða ekki.
En aldrei aftur kalla mig þjóðernissinna Guðbjörn ég drulluspældur út í þig núna.
Ég er einn að þínum föstu lesendum á eyjunni og hefur líkað nokkuð vel víð málflutning þinn þar. Les þig örugglega áfrám þó ég pínu skúffaður.
Sigurður Sigurðsson, 26.6.2010 kl. 23:32
Já og annað þú getur verið viss um að ef þessi flokkur ykkar samræmist mínum lífsgildum þá eigið þið stuðning minn vísan.
Sigurður Sigurðsson, 26.6.2010 kl. 23:53
Hvað er fólk eiginlega tilbúð að fórna miklu bara fyrir tryggð sína við flokk á borð við Sjálfstæðisflokkinn. Hugsið ykkur að ef við göngum í ESB þá lækka vextir á öllum lánum til heimilanna og fyrirtækja um 228 miljarða á ári, já 228 miljarða á hverju ári. Þetta eru peningar sem ég og þú eigum og verðum að vinna hörðum höndum fyrir og láta síðan af hendi við fjármagnseigendur. Að ganga í ESB yrði þess vegna mesta kjarabót sem íslenskum almenningi mun nokkurn tíman standa til boða. Hugsið ykkur einnig allar vinnustundirnar sem almenningur þarf að leggja á sig til að borga þessa 228 miljarða á ári. Þetta er fórnarkostnaðurinn sem við borgum fyrir að vera ekki í nánara samstarfi við aðrar þjóðir, og husið ykkur einnig hve við gætum búið börnunum okkar betra líf ef ekki kæmi til þetta rán á hverju ári. Einnig má velta því fyrir sér allan þann frítíma sem fólk hefði ef það þyrfti ekki að vinna myrkran á milli til að borga þessa okurvexti. Áfram ESB!!!!
Svona lán munu bjóðast Íslendingum ef þeir ganga í ESB. Þeir gætu valið á milli
1. Lán með 4 prósenta föstum vöxtum til 30 ára.
2. Lán með breytilegum vöxtum til 30 ára. Vextirnir á því láni eru nú 1,9 prósent og geta aldrei farið upp fyrir 5 prósent.
Sumir Íslendingar vilja borga sín lán með verðtryggingu og vöxtum 17 falt til baka, þ.e. þeir sem eru á móti því að ganga í ESB. Þessi kjör hér að ofan standa dönskum almenningi - og öllum Evrópubúum ef út í það er farið - til boða. Og þau eru öll óverðtryggð enda slíkt fyrirbæri óþarft í heilbrigðum hagkerfum. Þau sem sagt lækka í hvert skipti sem borgað er af þeim. Ef við tökum lán til 40 ára hér á landi og miðum við 5% vexti og 5% verðbólgu, sem sagt allt í fína lagi, þá þurfum við að borga hátt í 200 miljónir til baka á þessum 40 árum. Ef við tökum lán á evrusvæðinu 20 miljónir til 40 ára, þá þurfum við að borga 24 miljónir til baka. Hvort vilt þú?
Gott fólk, út af hverju takið þið ekki afstöðu til ESB út frá því hvort það komi ykkur persónulega vel eða ekki? Kvótagreifinn tekur afstöðu til ESB út frá því sem er best fyrir hann, óðalsbóndinn tekur afstöðu út frá því sem er best fyrir hann. Hvað með þig, langar þig að borga húsnæðislánið þitt 10 falt til baka, eða rúmlega einu sinni til baka? Hættum þessu bulli að láta einhverja sérhagsmunasambönd teyma okkur út í stuðning við örfáa aðila, tökum bara afstöðu til ESB út frá því sem kemur okkur sjálfum og fjölskyldum okkar best. Hvort viltu borga til baka af 20 miljóna króna íbúðarláni, 200 miljónir eða 24? Ertu flón eða maður sem stendur með sjálfum þér?
Lestu eftirfarandi og spurðu sjálfan þig hvort það sé þess virði að styðja við bakið á kvótagreifum og óðalsbændum? Hversu miklu ertu tilbúinn að fórna svo sérhagsmunaaðilar sofi rólega á meðan þú borgar af láninu þínu?
Samkvæmt útreikinginum á kostnað við fasteignalán til fjörutíu ára í Þýskalandi á fasteignavefnum Immobilienscout:=> Fjárhæðin skiptir ekki máli fyrir útreikningana, hún vex í sama hlutfalli hversu há sem hún er, en við miðuðum við 100.000 evrur og þá 4% vexti sem gefnir eru upp til viðmiðunar. Vaxtarkostnaður við slíkt lán væri 19.475 evrur. Það er, heildarfjárhæðin sem lántaki greiðir til baka á 40 árum er 119.475 evrur. Vaxtakostnaðurinn er tæp 20% af lánsfjárhæðinni.
Kostnaðurinn við þýskt húsnæðislán til 40 ára er því undir 20% af lánsfjárhæðinni. Kostnaðurinn við íslenskt húsnæðislán til sama tíma, miðað við 6% vexti og 5% verðbólgu, er yfir 800% af lánsfjárhæðinni. Munurinn á 20% (0,2x) og 800% (8x) er fertugfaldur.
Valsól (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 00:09
Sjálfstæður Evrópusinni (leiðrétting: Evrópubandalagssinni) = Blanda af verstu hliðum Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í einum graut. Ofstækismenn með dónaskap kallandi aðra "þjóðernissinna" fyrir að vilja ekki beygja sig og bukta fyrir Nýja Stór Þýskalandi, sem verður svo kannski Germanistan eftir 100 ár, en það er önnur saga. Ég er enginn þjóðernissinni og verð aldrei, meirihluti íslensku þjóðarinnar er það ekki heldur. Við erum bara ekki heimskingjar!
Jón Jónsson (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.