Mitt álit vex stöðugt á Þór Saari.

Hér eru hlutirnir sagðir eins og þeir eru. Auðvitað á að láta okkur skattgreiðendur og lántakendur borga fyrir allt bullið sem hefur viðgengist í bankakerfinu og heldur stanslaust áfram.

Burt með allt þetta vanhæfa lið sem setti hagkerfið á hliðina. 

 


mbl.is Borgi ekki umfram greiðsluáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki málið að leita ráða hjá Castro

Á Kúpu er rekið fyrirmyndar heilbrigðiskerfi. Bara koma upp sama skipulagi og hjá Castro enda ætti Álfheiði ekki að vera skotaskuld úr því. Er það ekki í anda VG.

Þá er ekki nein hætta á að þessir læknar færu að stinga af. Áflheiður gæti bara bannað það. 

 


mbl.is Erfitt starf og illa launað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það eitthvað undarlegt

Þegar andsk. skattpíninging er allt að drepa hérna.

Olíufélögin haga sér að vild án þess að lamað samkeppniseftirlit hreyfi legg né lið.

Þegar gisting innanlands er verðlögð í erlendum gjaldmiðlum. 

Þegar allar okkar tekjur fara annað hvort í skatta eða afborganir til fjárglæfrastofnana. 


mbl.is Mikill samdráttur í bílaumferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað væri æðislegt að hann

færi alfarið í þetta jobb.
mbl.is Steingrímur á HM-fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað þetta er steikt

Það er ekki einu sinni hægt að byrja það litla sem boðið er út vegna formgalla og pirraðra embættismanna.
mbl.is Kallað eftir gögnum frá verktökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ætla þeir að kjafta sig í kaf

Áður en þeir komast einhverri niðurstöðu. Samgönguráðherra er svo pínlega augljós kjördæmapotari að annað eins hefur ekki sést síðan Sturla B var í sama jobbi.
mbl.is Framkvæmdir fyrir 30 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur einhvern tíman verið til bankamaður

sem er eitthvað að marka. Bullið sem dynur yfir okkur frá þessum peningapúkum er svo yfirgengilegt að hálfa væri nóg. Ef að lánasamningar standa og gengistrygging fellur niður tapa þeir shit load of money. Skattgreiðendur verða að taka það tap á sig. Ekki gera eigendur bankana það frekar en venjulega.

Bankaliðið eru aumingjar með hor sem getur ekki tekið afleiðingum gerða sinna. 


mbl.is Óttast ekki nýja kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt að lesa þessa frétt

Þetta eru fréttir sem eru alveg einstaklega ömurlegar. Vegna þess að í þessu landi þar sem allir ættu að hafa nóg að bíta og brenna.

Hvar er Norræna Velferðarstjórnin er nema von að maður spyrji.

Steingrímur er að kála okkur með skattaruglinu, Svandís slekkur allar vonir um mannaflsfrekar framkvæmdir og kæfir þær í fæðingu. Framkvæmdafræði var ekki kennd í félagsvísindakúrsinum sem hún og félagar hennar tóku í HÍ.

Jóka er algerlega út á þekju og veit ekki hvort hún er að koma eða fara. Best væri að hún færi sem fyrst en Árni Páll ætlar klúðra ellilífeyrinum þannig að það er ekki spennan

Að hafa Árna í félagsmálunum er eins og hafa fíl í postulínsverslun. 

Veit einhver hvað Álfheiður er að gera. Já þessi sem er gift lögmanninum sem varði gengislánaruglið. Er ekki lagi með okkur íslendinga að hafa virkilega ekki séð í gegnum þetta lið sem hefur ekki minnsta áhuga á kjörum almennings. 


mbl.is Sífellt fleiri þurfa aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ekki rétt að hitta Breta og Hollendinga

Og segja þeim að taka þessar kröfur og troða þeim þar sem sólin skín ekki.
mbl.is Fundað um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já já auðvita

En vonandi gengur ekki jafn hörmulega og með samgöngumiðstöðina. Að maður tali ekki um fangelsið sem átti að byggja í hádegismóum.

 


mbl.is Bygging nýs fangelsis boðin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband