Þór er með þetta

Hvað er hægt að segja meir. Steinliggur hjá Þór, alveg eins og talað úr mínu hjarta.
mbl.is Hættulegt aðgerðaleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einhver eftirspurn eftir skoðunum Tryggva

Já það er frekar fúlt að "félagarnir" í bankageiranum tapi kannski einhverjum aurum og hinn almenni lántaki losni úr hreðjataki lánastofnana.

Hundfúlt ekki satt Tryggvi. Dálítið svekkjandi að vera núna á hinum enda snörunnar. 


mbl.is Ekki leyst nema fyrir dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða skelfing er núna framundan

Norræna velferðarstjórnin lætur ekki að sér hæða. Nú verður að passa að fjármálastofnanir tapi ekki. Nei það verður að halda áfram að velta þessu á neytendur.
mbl.is Lausn á næstu dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nákvæmlega

Er eitthvað meira um þetta að segja.
mbl.is Neytendasamtökin: Tilgreindir vextir gilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mörður, halló er ekki í lagi með þig

Hvað er eiginlega að þessu liði.

Hæstiréttur hefur úrskurðað og í hag lántaka. Þá er þessi niðurstaða ómöguleg og nú verður að grípa til einhverra aðgerða til að rétta hlut lánveitenda.

Dæmigert.

Maðurinn er sami fávitinn og Kiddi sleggja. 


mbl.is Vill verðtryggingu á lánin
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Varð að reikna og ég skulda skít og kanel í bílnum jibbí

Svakalega er ég glaður eftir að ég fór í smá excel æfingar. Skulda smá í öðrum bílnum og aðeins meira í hinum og það sem meira er að ég á orðið eigið fé í bílunum.

Enda ekki nema eðlilegt

Enska liðið búið að vera í djúpum skít hingað til.
mbl.is Leitaði að salerni en fann enska landsliðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarsátt um endurgreiðslu á ofteknum vöxtum

Núna hlýtur það að vera ný staða hjá bankastarfsfókli að sitja hinu megin við borðið. Ef þeir borga ekki eigum við almenningur ekki fara og vörslusvipta þessa bófabanka.

Afhverju ætti almenningur að vilja semja við þessi fyrirtæki, ekki voru þau svo liðleg þegar kreppti að okkur almennigi. 

Fari þau og veri. 


mbl.is Skapi þjóðarsátt um lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með mannlega máttinn

Er von að maður spyrji?? Hvað með mannlega mátt sólbrúna prestsonarins. Er núna allt í einu hægt að veifa töfrasprotanum og fara í almennar lagfæringar á húsnæðislánum.

Eru þessir höfðingjar ekki aðeins of seinir að fara að grípa til aðgerða. 


mbl.is Endurmeti húsnæðislánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mánudagur til mæðu

Nú er helgin liðin og á morgun leggjast lánþegar með fullum þunga á fjármögnunarfyrirtækin. Ekki það að ég hafi einhverja samúð með þeim sem eiga þau en starfsfólk sem fylgdi fyrirmælum stjórnenda á ekki skilið að verða fyrir líflátshótunum.

Lánþegar eiga það skilið að fá endurgreitt það sem þeir hafa ofgreitt og leiðrétt samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Það verður auðvitað einhvert væl í þessum fuglum og síðan hafa stokkið fram uppgjafa pólitíkustar eins og Kiddi sleggja sem væla yfir óréttlæti sem fjármálastofnanir þurfa að þola í framhaldi dómsins. Honum finnst eðlilegt að þeim sé bættur skaðinn af því að fá einungis sömu vexti og lánastofnanir í hinum siðmenntaða heimi umhverfis okkur. Já óréttlæti heimsins er mikið en ekki heyrðist eitt einasta tíst í þessum fyrrverandi pólitíkus þegar þessu sömu stofnanir sem hann telur órétti beittar hirtu eigur af fólki, sundruðu fjölskyldum og báru út á götu. Nei honum þótti það ekki frágangssök. Maðurinn er fáviti. 

ESB æææææ!!!!!!! hvað getur maður sagt annað. Ætlar þetta rugl engan enda að taka. Þjóðin er eins og jójó í því máli. Sveiflast fram og til baka. 

AGS, ætlar engin að hafa manndóm í sér að segja þeim að hypja sig og endilega taka Eddu Rós með, þessa sem stjórnaði greiningardeild bófabankans i Austurstræti. 

Fótbolti, hmmm finnst virkilega einhverjum að þetta sé íþrótt. Bara að grínast

Bara svona til að hreinsa hugann eftir helgina


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband