Hárrétt hjá Þór

Gylfi er greinilega að taka stöðu gegn lántakendum með bankamafíunni. Og hann er umboðslaus í þokkabót. Almenningur kaus hann ekki og nú viljum við reka hann í hvelli. Afhverju að reka hann, nú hann er ekki að vinna fyrir okkur kjósendur heldur þrönga sérhagsmunaklíku fjármagnseigenda og kröfuhafa.
mbl.is Taka stöðu gegn almenningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

spot on

En hvaða líkur er á því varðhundur bankana hlusti núna frekar en áður.
mbl.is Hafi bara áhrif á gengistrygginguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gamla kjaftæðið

Það á að passa upp á að lántakendur fái enga leiðréttingu. Hvar er þessi maður sem ég hlustaði á á Austurvelli. Hann er týndur og tröllum gefin eða kannski réttara að bankaskrýmslið gleypti hann með húð og hári.

Það er ömurlegt til þess að hugsa að þegar loks er smá von um leiðréttingu á ósanngjörnum kröfum þeirra sem settu landið á kúpuna þá komi þessi labbakútur þeim til bjargar. Þessum skítlegu fjármálastofnunum sem hafa það eina markmið að reyna með öllum ráðum að sölsa undir sig eigur landsmanna. 

Þessu liði sem er nákvæmlega sama um samborgarar sína og hafa hingað til reynst miskunarlausar skepnur í samskiptum við viðskiptavini sína. Þeim er nákvæmlega sama hvort að fólk lifir eða deyr bara ef þeir fá aurana sína. Skítsama um samfélagslega ábyrgð enda er ekki hægt að græða á henni. 

Við eigum okkar rétt og við eigum að standa fast á honum annars verður bylting og þessu liði mokað út af hinu háa Alþingi. 

 


mbl.is Almenningur fengi reikninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yes sure!!

Og hversu mikið meira hefðu þessir höfðingjar lækkað vextina umfram þetta hálfa prósent.

Alveg merkilegt hvað þetta lið heldur að almenningur sé vitlaus. 


mbl.is Hefðu lækkað vexti meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það byrjað

Jæja þá byrjar það. Fyrirtæki fara úr landi og við sitjum berrössuð á klakanum. Þetta er allt í boði arfavitlausar skattastefnu VG sem á þá ósk heitasta að við förum í öll í fjallgrösin.

Hvenær losnar kyrkingartak kommanna af atvinnustarfsemi á íslandi. Enda var svo sem ekki von á öðru þegar Austur þýskir puttar eru komnir í fjármálaráðuneytið. 


mbl.is Forstjóraskipti hjá Actavis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bruðlarar ????

Já sæll Pétur. Allir þessir 44.000 einstaklingar eru auðvitað vont fólk sem á ekkert gott skilið.
mbl.is Bruðlurum bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sætur og sællegur

Vá hvað hann er flottur svona sólbrúnn. Bara að það kæmi eitthvað að viti upp úr honum þá væri lífið fullkomið. En það er borin von.

Er ekki komin tími til að fara brýna heykvíslarnar og fleiri garðverkfæri. Það eru takmörk fyrir því sem hægt er að þola af bulli. 

Samfylkingin er svo upptekin af því að líta út sem þokkaleg bráð fyrir ESB að þau mega ekki vera að því að pæla í þrautpíndum íslenskum almenningi. 

VG er upptekin við að banna og banna að banna bara eitthvað að þeir vita ekki að það er bannað að banna einhverju að ( Vá komin út í tóma steypu en það skýrist af því að ég er að skrifa um VG.) 

Ögmundur vildi Liljurnar kveðið hafa. Æ sorry ég er bara komin með upp í kok af þessu andskotans liði. 

Sjálfstæðisflokkurinn. uhu ég veit ekki og þeir vita heldur ekki í hvorn styrktarfótinn er best að stíga í neinum málum.

Framsókn hmmm er sá flokkur enn til. Er nema von að maður spyrji eru þetta ekki að flokksbrot dreif um allar jarðir ( um allar jarðir smá sveitarómantík) 

Hreyfingin já eru þau ekki að standa sig ig hig ( shit er að missa mig í tóma vitleysu) 

Góðar stundir


mbl.is Dómurinn skapar ekki peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað

Allir banksteranir með drullu. Skíthræddir um að ná ekki að ræna síðustu krónunum.
mbl.is Minnkar líkur á vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað þetta er leiðinleg kona.

Það er einhvern vegin allt leiðinlegt. Skoðanir, málrómur (nei bara að grínast) En ég er bara alls ekki sammála henni um að það sé ekki svigrúm til að koma til móts við lántaka. Hvaða leyfi hafa fjármálastofnanir til að ganga sjálfala í veskjum landsmanna.

Við eigum okkur engan málsvara á hinu háa Alþingi. Við þessi sem réðum ykkur í vinnu og höfum í hendi okkar hvort að þið fáið aftur vinnu. Ekki gleyma Reykjavík og Akureyri í síðustu sveitarstjórnarkosninum kæru Alþingismenn. Við kjósendur erum breyttir og núna gleymum við ekki svo glatt. Það verða kannski aðrir kostir í stöðunni í næstu kosningum.

Ekki hægt að leiðrétta þjófnaðin né skila þýfinu. En við viljum fá bætur og þær viljum við fá strax.


mbl.is Varar við of miklum væntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ansi merkilegt

Hugsa sér að AGS sé komið í fýlu af því að þeim líkar ekki lög á Íslandi.
mbl.is Lán frá AGS gæti tafist vegna dóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband