Ótrúlega aulaleg viðbrögð

Er engin endi á vanhæfni stjórnsýslunar á þessu skeri.
mbl.is Gagnrýna Seðlabankann harkalega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóley hafði ekki húmor fyrir þessu Eygló.

En pillan var soldið góð hjá henni. Ef maður er liðsmaður VG þá getur maður verið séra Jón.
mbl.is Pósturinn sem innihélt ORÐIÐ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði ekki verið hægt að sjá þetta fyrir

Er þetta ekki nákvæmlega það sem varað hefur verið við varðandi AGS.

Auðlindir þjóðarinnar seldar. 

Sárast til þess að vita að þetta gerðist fyrir framan eldrautt kommanef VG liða. 


mbl.is Orkufyrirtækin af markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá ég hélt að það væri átt við þjóðarskútuna

En síðan var þetta einhver löngu sokkinn olíudallur.

En það veitti nú ekki af því að fara að leggjast á lensidælurnar og koma þjóðarskútunni á flot. Nokkuð ljóst að norræna velferðarstjórnin er að svíkjast um á dælunum og það er sjór í öllum lestum og vélarrúminu einnig. 


mbl.is Fundu sokkið skip við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki veitir eyjadrottningunni af tekjunum

Það kostar sitt að halda uppi Mogganum.
mbl.is Nýtt fólk á skattalistanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálastofnanir naga eigur landsmanna.

Minnir mann soldið á músagang, andskotanum erfiðara að komast fyrir hann.
mbl.is Skuldir hækka meira en eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nema Ísland.

Merkileg niðurstaða. Ríki bera ekki ábyrgð á innistæðum umfram getu innistæðutryggingasjóða nema í tilfelli íslands.

Alltaf að koma í ljós betur og betur hvers konar klúður þessi neyðarlög voru. Við almennir skattborgarar fáum að súpa seiðið af því að hafa hysjað upp brækurnar um sparifjáreigendur. Sparifjáreigendur sem ekki mega heyra á það minnst að leiðrétta skuldir lántaka. 


mbl.is Bera ekki ábyrgð á innstæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoppa þetta í hvelli, útrás útrás hjálp

VG ekki láta þetta viðgangast. Það er einhver að reyna að gera eitthvað. Þetta má ekki ske. Svandís þarf þetta ekki að fara í umhverfismat.

Hjálp 

Já ekki láta þessa bjálæðinga á Selfoss komast upp með að virkja Ölfusá. Þetta lið er kolgeggjað.


mbl.is Oddi opnar í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draugasaga eða kannski sönn saga

Það er hárrétt að samningurinn er ekki á forræði ríkisstjórnarinnar og þau geta ekki rift honum. Það sýnir kannski best veruleikafirringuna hjá þingflokksformanni VG að rjúka á stað í fjölmiðla og krefjast þess að ríkisstjórnin framkvæmi eitthvað sem er ekki á hennar valdi.

Það er síðan á ábyrgð Alþingis að setja traustan lagaramma um auðlindir þjóðarinnar. 

Annars er þetta bráðfyndið upphlaup hjá VG og sennilega til að breiða yfir þá staðreynd að Magma klúðrið gerðist á þeirra vakt. 

Kannski verður þetta til þess að við losnum við norrænu velferðarstjórnina sem er að keyra allt í kaf með annars vegar vitlausum aðgerðum eða aðgerðaleysi.


mbl.is Draugasögur um afarkosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegt framtak.

Friðrik hafðu þökk fyrir framtakið.

Ómar Ragnarsson hefur verið gleðgjafi í gegnum árin. 

En hann hefur fyrst og síðast verið útvörður náttúrverndar og opnað augu landsmanna fyrir stórkostlegri náttúru Íslands. 

Ómar takk. Takk fyrir að láta ekki bugast og halda þínu striki. 


mbl.is Ómar orðinn skuldlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband