Jæja hafa þeir áhyggjur.

En þeir hafa örugglega ekki áhyggjur af afkomu þúsunda fjölskyldna sem berjast í bökkum við að ná endum saman. Nei þeim er ábyggilega nákvæmlega sama en AGS hefur verulegar áhyggjur af því að umbjóðendur þeirra þ.e. kröfuhafarnir ná ekki að blóðmjólka þjóðina.
mbl.is AGS hefur áhyggjur af bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki nákæmlega sama og Marinó benti á

Það er skítalykt af þessu máli langar leiðir. Ríkisstjórnin er að undirbúa eitthvert plott til að klekkja á lántökum.
mbl.is Öfugsnúin viðbrögð ríkisstjórnar og Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju fær þjóðin aldrei að vera með

Samráðsfundir leyndó og ákveðnir aðilar upplýstir um stöðu mála. Bíddu halló hvað er í gangi hér. Er þetta lið ekki að gleyma hver er vinnuveitandi þeirra. Hvern andsk. eru þau að bralla núna.

Er ekki komin tími til þess að litast um eftir hæfu starfsfólki. 

Eigum við ekki að segja þeim upp. 


Bíddu er það ekki hárrétt hjá hr Sanderud

Við höfum ekki minnsta áhuga á því að borga eina einustu krónu í þessu anskotans Icesave máli bara til að Samfylkingin fái sinn blauta ESB draum uppfylltan.
mbl.is „Eldfjallið" Össur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já þvílíkt klúður

Hrikaleg tilhugsun að lántakar fái eitthvað leiðrétt. Ömurleg tilhugsun fyrir Norrænu velferðarstjórnina.

Merkilegast er þó að Jóhanna sást opinberlega. Því ber auðvitað að fagna. 


mbl.is Upplýstir um stöðu mála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt hjá Gylfa Arnbjörnssyni.

Auðvitað eiga skilanefndirnar að gefa verulegan afslátt af þessum lánum sem voru gölluð vara.
mbl.is Ábyrgðin hjá gömlu bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svakalega er ég leiður á þessum manni.

Loks þegar ljós birtist við enda gangana skellir þessi maður hurðinni á nefið á þrautpíndum lántökum. Ömurlegur málflutningur varðhunds bankabófana sendir hroll niður bakið á manni.

Hver í veröldinni ákvað að þessi maður ætti að vera ráðherra. 


mbl.is Samningsvextir haldist ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jibbí sumarfrí.

Já það er munur að vera á ríkisjötunni og geta fengið sumarfrí. Það er munaður sem ekki nærri allir geta leyft sér.

Kannski væri samt best að þetta lið færi í endanlegt frí. Ekki gera ekki neitt á ágætlega við. Meðan þau gera ekkert þá vinna þau ekki þjóðinni neitt tjón.

 


mbl.is Þingfundum frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að ná í vælubílin

Ef við látum ekki almenning borga þá tapa vinir mínir í bönkunum og það gegnur ekki. Bara hugmynd að upphafi á ræðunni hans.
mbl.is Gylfi gefur skýrslu vegna dómsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Treystir bönkunum

Atli er þá í hópi innan við 5% þjóðarinnar sem treystir þessum glæpamönnum
mbl.is Treystir bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband